Þjónustan
Garðasmíði
Hjá Verönd höfum við einfalda lífsýn sem felur í sér ástríðu við að fegra umhverfið og auka notagildi þess. Þessi ástríða hefur keyrt okkur áfram í leit að nýjum leiðum og hugmyndum til að endurbæta og ná settu marki.
Palla og skjólveggjasmíði okkar hefur verið leiðandi frá 1999 á sviði tréverks og lóðaframkvæmda. Með auga fyrir fallegu handverki og fagmennsku að leiðarljósi höfum við skapað fjölda draumagarða ánægðra viðskiptavina.
Garðahönnun
Forsenda vel heppnaðs garðs er góð forvinna, að staldra við og hugsa um notagildi áður en lagt er af stað í framkvæmdir. Þá er mikilvægt að huga að atriðum eins og góðri nýtingu sólar, skjóli, hlutföllum og náttúrulegu flæði. Lýsing í görðum er ekki síður mikilvægur þáttur til að skapa rétta stemningu.
“Að vera með vel hannaðan og skipulagðan garð skiptir öllu máli. Oft þarf ekki miklar breytingar til að ná þessu markmiði og ávinningurinn getur verið mikill.”
Almennt viðhald
Við tökum einnig að okkur alhliða smíðavinnu innanhúss sem utan, ásamt flísalögn, viðgerðum og sérsmíði.
Flísar og múrverk
Höfum áratuga langa reynslu í flísalögnum og múrverki.
Sérsmíði
Sérsmíði er hentug lausn þar sem þörfum viðskiptavinarins er mætt. Sérsmíðin hefur þann kost að viðskiptavinurinn getur haft áhrif á hönnun vörunnar og getur látið drauma sína rætast hvað varðar form og efnisval.